Content on this page requires a newer version of Adobe Flash Player.

Get Adobe Flash player





SVONA GERUM VIÐ

Smellið á myndirnar hér að neðan:

Skuola Screenshot Piecepappastandar
Gerð pappastanda er nýjung hjá okkur en við höfum náð undraverðum árangri á stuttum tíma. Við getum skorið úr pappastandinn út alveg eftir ósk viðskiptavinarins, stækkað hann eða minnkað o.s.f.v. Við getum merkt pappastandinn með öflugum merkingum.

The Music Magazine Screenshot PieceÚtfræsing
Útfræstir og sjálfstæðir stafir gera lógó fyrirtækis eða stofnunar öflug og virðuleg jafnt utan veggja sem innan. Eins eru festingarnar sem stafirnir sitja fastir á mjög þægilegar þar sem auðvelt er að taka merkinguna eða hluta hennar niður ef breytinga eða lagfæringa gerist þörf. Efnismöguleikarnir eru margir, s.s. ál, stál, pvc, mdf ofl.

The Music Magazine Screenshot PieceFlugvélamerkingar
Hjá merkingu hefur þróast mikil þekking á merkingu á flugvélar og höfum við tekið að okkur verkefni víða um heim. Merkingar á flugvélar krefjast mikillar nákvæmni og eru gerðar strangar kröfur til verksins hvað varðar efnisnotkun og vinnubrögð. Við höfum merkt flugvélar m.a. fyrir flugfélögin Icelandair, Blue Line, Air Nuigini, Kabo air ofl. Við höfum yfir 30 ára samanlagða reynslu af merkingu flugvéla og erum eitt af fáum fyrirtækjum sem getur boðið upp á flugvélamerkingar í Evrópu.

The Music Magazine Screenshot PieceBílamerkingar
Við merkjum bíla allt frá því að líma einfaldan texta upp í það að heilmerkja strætisvagna og eins minni bifreiðar. Bílamerkingar er vandasamt verk og mikilvægt er að notast við hárrétt efni sem þola vel íslenska veðráttu.Bílamerkingar hafa einnig gríðarlega mikið auglýsingagildi. Og þegar góð hönnun auk hágæða prentunar fara saman verður árangurinn virkilega góður. Við erum með mjög stóran prentara sem verður til þess að þó að um sé að ræða stóran flöt verða samsetningar í filmunni afar fáar.

The Music Magazine Screenshot PieceGluggamerkingar
Gluggamerkingar eru til margt nytsamlegar, þær eru fyrst og fremst góður auglýsingamiðill, þær loka fyrir gluggann ef þess þarf og geta einnig minnkað sólarljósið. Gegnsæ gluggafilma er eins og venjuleg límfilma fyrir utan það að hægt er að sjá í gegnum filmuna innan frá en ekki utan. Þessi filma er einnig kjörin þar sem öruggi t.d. verslunar er í öndvegi. Eins kemur gegnsæ gluggafilma sér vel ef hefta þarf sólarljósið. Sandblástursfilma er mjög nytsamleg þar sem þarf að loka glugga en þó að dagsbirtan haldi sér. Sandblástursfilma býður upp á fjöldan allan af möguleikum. Nýleg tækni veitir okkur þann möguleika að prenta á hana í svörtu sem og lit.

The Music Magazine Screenshot PieceLjósmyndaþjónusta
Merking hefur upp á að bjóða einn fullkomnasta búnað til stækkunar ljósmynda, margir möguleikar eru í frágangi mynda. Áratuga reynsla okkar í vinnslu ljósmynda íog að hafa vanan ljósmyndara innanborðs, treystum við okkur til að bjóða fullkominn frágang mynda fyrir þig eða þitt fyrirtæki. Komdu með uppáhaldsljósmyndina þína og láttu okkur stækka hana. Þú getur fengið hana framkallaða með hágæða upplausn og límd á foam,prentaða beint á álplötu sem er mjög vinsælt í dag eða prentaða á striga og síðan setta á blindramma.

UM MERKINGU

Merking var stofnað um sumarið 1979.

Merking er leiðandi fyrirtæki í hönnun og ráðgjöf á skiltum og umhverfismerkingum.

Viðskiptamannahópur okkar er stór og fer sístækkandi. Við leggjum á það áherslu að vinna og hanna merkingar frá A - Ö.

Samanlögð reynsla okkar er 30-40 ára svo það segir heilmikið um það sem við getum gert. Verkefnin eru aldrei of stór.

Ekki hika við að setja þig í samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst, heyra í okkur hljóðið í síma 562 7044 eða renndu við og við tökum vel á móti þér.


TENGILIÐIR

Jóhannes Frank Jóhannesson: joi(hja)merking.is

Valgerður Þorbjörnsdóttir: valla(hja)merking.is

Una Sigurðardóttir: una(hja)merking.is

Brynjar Ýmir Birgisson: brynjar(hja)merking.is

HVAR ÞÚ FINNUR OKKUR


Hönnun: Taktik auglýsingar*

Merking ehf. - Sími: 562 7044 - Viðarhöfða 4 - Tölvupóstur: merking@merking.is