Ljósmyndaprent
Pantaðu og sendu myndina beint héðan af vefnum:
Hér vinstra megin á vefnum eru hnappur “Ljósmyndaprent” sem tengir þig inn á pöntunarsíður þar sem þú getur valið mynd af skjáborði þínu eða möppu og sent okkur beint. Eina sem þú þarft að gera er að skrá þig inn sem viðskiptavin, og muna lykilorðið. Það styttir þér leiðina næst þegar þú þarft að panta.
Ljósmyndastækkun
Merking hefur upp á að bjóða einn fullkomnasta búnað sinnar tegundar til stækkunar ljósmynda og margir möguleikar eru í frágangi mynda. Áratuga reynsla er fyrir hendi í vinnslu ljósmynda með vanan ljósmyndara innanborðs. Við treystum við okkur til að bjóða vandaðan frágang þínum myndum.
Vandaðar ljósmyndasýningar eru okkar markmið.
Framköllunarvélin okkar Lightjet 5000, hefur hámarks myndflöt 125x2500cm - Epson 9800 prentarinn okkar hefur hámarks myndflöt 110x2500 cm.
Frágangur á myndum
Komdu með uppáhaldsljósmyndina þína og láttu okkur stækka hana. Þú getur fengið hana framkallaða í miklum gæðum.
Hafðu samband, möguleikarnir eru ótrúlega margir.
Skil á myndum
Best er að senda okkur sem hæsta upplausn á myndinni fyrir prentun til að tryggja bestu gæðin. Við látum þig vita ef myndin er ekki í nægjanlegri upplausn fyrir prentun. Senda má inn í jpg, eps, psd, raw, nef, dng, cdr, Við getum einnig skannað inn gamlar sem nýjar ljósmyndir fyrir þig. Sýnishorn eru á staðnum hjá okkur af sömu myndinni í mismunandi útfærslum.
Vandaðar ljósmyndasýningar
Merking hefur sett upp margar stórar sem smáar ljósmyndasýningar á Íslandi og unnið þær í samstarfi við marga þekktustu ljósmyndara landsins þar sem metnaður og nákvæmni er í fyrirrúmi.
Smelltu á myndirnar hér fyrir ofan til að sjá sýnishorn.
Hafðu samband í síma 562-7044, sölufulltrúar ljósmynda eru: