Hér hægra meginn er hægt að skoða nánar mismunandi frágang á myndum og verð. --->
Ljósmynd á foamplötu
Myndin er prentuð / framkölluð, húðuð með UV plasthúðun (matt, millimatt, háglans eða hömruð áferð) og hún límd niður á foamplötu. Foamfestingar fylgja með.
Epson tryggir þér hágæða prentun en við framköllum á Fuji ljósmyndapappír. Við erum ekki bundin ákveðnum stærðum heldur skerum til eftir þínum þörfum.
Hentar fyrir allskonar myndir, fólk, landslag, list, texta, auglýsingar, spurning hversu ríkt hugmyndaflugið er. T.d. manstu eftir þegar verið er að gefa stórar ávísanir í söfnunum og verðlaunum. Þær eru í flestum tilfellum settar á foam.
Hægt er að skera foamplöturnar í allskonar form, myndin þarf ekki alltaf að vera ferhyrningur.
Foam er mjög vinsælt þegar verið er að setja upp sýningar, það er létt og meðfærilegt en engu að síður mjög viðkvæmt.
Ljósmynd á álplötu
Myndin er prentuð / framkölluð, húðuð með UV plasthúðun (matt, millimatt, háglans eða hömruð áferð) hún límd niður á álplötu og 2cm breiðir listar settir á bakvið til að upphengingar.
Landslagsmynd á álplötu í panorama (t.d. 40cm x 120cm) með millimatt áferð setur lokapunktinn í fallegu stofuna þína. Myndin er hengd upp án þess að þú sjáir festingar og er alltaf 2 cm frá vegg. Við erum ekki bundin ákveðnum stærðum heldur skerum til eftir þínum þörfum. T.d. mynd í 23x48cm væri ekkert mál að gera.
Hentar fyrir allskonar myndir, fólk, landslag, list, texta já og bara hvað þér dettur í hug.
Plexigler
Myndin er prentuð / framkölluð, og límd undir plexigler.
Gefur myndinni þinni mikla dýpt og mjög skemmtilega áferð þar sem hún er undir 5mm glæru plexigleri.
Borað eru 4 göt (stundum fleiri ef myndir eru stórar) og settar festingar sem halda myndinni 2cm frá vegg. Margir hafa sett lýsingu á bakvið eða ljóskastara á myndina sem gefa myndinni enn meiri dýpt.
Einnig er hægt að setja upphengilista á bak.
Prentun beint á plexigler, foam eða álplötu
Við getum prentað á nánast hvaða flöt sem er. Sú prentun (sprautuprentun) er þó mjög ólík prentun á pappír. Sprautuprentun er aðeins grófari en framköllun á pappír. Þá skiptir öllu máli líka hvernig lit flöturinn er sem þú prentar á. T.d. að prenta á hvítan flöt gefur þér líkast pappírnum en samt grófari.
Að prenta beint t.d. á grátt ál gefur þér miklu dekkri mynd en á hvítt ál því hvítur litur prentast ekki. Þannig að það sem er skjannahvítt í myndinni þá kemur grunnurinn í ljós, en aðeins minna ef það er ljósgrátt.
Til að gefa dæmi, ef þú prentar beint á plexigler mynd sem er svört og hvít köflótt þá sérðu í gegnum plexiglerið þar sem hvítu kassarnir eru en ekki þá sem eru svartir.
Strigaprentun
Myndin er prentuð á Epson striga og Epson prentari og blek eru notuð til að tryggja hágæða prentun. Myndin er svo lökkuð og strekkt á blindramma. Rammarnir hlaupa á 5cm þannig að þegar þú pantar verða stærðirnar að vera 20cm, 25cm, 30cm, 35cm og svo frv. Mesta breidd er 107cm og lengd 25metrar.
Áferðin á striganum og blindramminn gerir myndina að fallegu listaverki. Við getum auðveldlega sett myndina fyrir þig í brúntóna, eða svarthvítt. Þú getur látið hluta af myndinni fara utan um rammann eða sett annan lit á hliðarnar.
Fjölskyldumyndir og barnamyndir eru mjög vinsælar á striga, landslagið verður að listaverki en í raun henta allar myndir á striga.
Eftir einhvern tíma ef slakknar á strigamynd þá eru litlir fleygar í blindrammanum sem hægt er að ýta inn til þess að strekkja á henni aftur.
Ljósmyndastækkun
Merking hefur upp á að bjóða einn fullkomnasta búnað sinnar tegundar til stækkunar ljósmynda,margir möguleikar eru í frágangi mynda. Við eru með áratuga reynslu og vanan ljósmyndara innanborðs. Við treystum við okkur til að bjóða fullkominn frágang mynda fyrir þig. Metnaðarfullar ljósmyndasýningar eru okkar móttó.
Lightjet 5000 - Hámarks myndflötur Epson 9800 prentara er 110x2500 cm.
Frágangur á myndum
Komdu með uppáhaldsljósmyndina þína og láttu okkur stækka hana. Þú getur fengið hana framkallaða í háum gæðum.
Hafðu samband, möguleikarnir eru óendanlegir
Skil á myndum
Best er að við fáum sem stærstu upplausn á myndinni fyrir prentun til að tryggja bestu gæðin. Við látum þig vita ef myndin er ekki í nægjanlegri upplausn fyrir prentun. Senda má inn í jpg, eps, psd, raw, nef, dng eða cdr. Við getum einnig skannað inn gamlar sem nýjar ljósmyndir fyrir þig. Sýnishorn eru á staðnum hjá okkur af sömu myndinni í mismunandi útfærslum.
Vandaðar ljósmyndasýningar
Merking hefur sett upp margar vandaðar ljósmyndasýningar á Íslandi og unnið þær í samstarfi við marga af þekktustu ljósmyndurum landsins þar sem metnaður og nákvæmni er í fyrirrúmi. Einnig höfum við séðum frágang á ljósmyndasýningum erlendis, svo sem Mexico, New York, Ítalíu og fl.
Sölufulltrúar í ljósmyndum eru:
Þegar þú sendir inn gögn/mynd í framleiðslu hjá okkur berð þú fulla ábyrgð á því að höfundarréttarlög séu ekki brotin.