• Bílmerkingar
  • Bílamerkingar
  • Bílamerkingar
  • Bílamerkingar
  • Bílamerkingar
  • Bílamerkingar
  • Bílamerkingar
  • A4
  • Eirberg
  • Íslandsbanki
  • Gluggamerkingar og filmur
  • Sandblástursfilma
  • Melavöllur
  • Tollstjóri
  • Foam
  • Ál
  • Plexígler
  • Beint á pappír, plexígler, ál, foam, eđa tré
  • Prentun beint á plexigler, foam eđa álplötu
  • Strigaprentun
  • Sýning Ragnars Th.
  • N1
  • Delicatessen
  • Danfoss
  • Hjartavernd
  • Fljótsdalshérađ
  • Nettó
  • Lava
  • Saltkaup
  • Landsbankinn
  • 3D
  • Sýnishorn
  • Sýnishorn bakveggur
  • Gardínur
  • Slatz 1
  • Slatz 2
  • Domus Medica
  • Slatz 3
  • Ráđhús Garđabćjar
  • vantar
  • Bílamerkingar
  • Flettiskilti
  • Fánaprentun
  • Flugvélamerkingar
  • Gluggamerkingar og filmur
  • Ljósmyndaprentun
  • Límmiđar
Bílar Gluggar Ljósmyndir Skilti Sýningar Slatz

sagan 

Sögubrot – Merking ehf.

1979  Stofnað.  
Þá hét fyrirtækið Umferðarmerki hf og var til húsa að Lindargötu 48 í Reykjavík.  1. Nóvember

1979
Kaupir Umferðarmerki starfsemi fyrirtækis sem hét Skilti og Auglýsingar sf.

1983
Umferðarmerki hf flytur að Bræðraborgarstíg 9 í leiguhúsnæði með kauprétti.  Sá kaupréttur var svo nýttur 1. Febrúar 1985.

1987
Umferðarmerki hf kaupir fasteignina að Brautarholti 24.

1987
Fyrsti plotterinn keyptur. Tölvutengdur plotter sem skar út merkingar úr límdúk. Nýttist vel í merkingar á skiltum, gluggum, bílum og fleiru.

1988
Umfang og fjölbreytni eykst og nafni félagsins breytt í Merkingu hf sem haldist hefur fram á þennan dag.

1988
Fyrsti fræsarinn keyptur. Tölvustýrður fræsari bættist í tækjasafnið og fyrirtækið gat nú boðið upp á útfræstar merkingar úr málmum og plasti ásamt því að skafa úr timbri sem kom sér vel fyrir sumarbústaðaeigendur og öll almenn fyrirtæki.

1989
Merking flytur í Brautarholt 24. Vöxtur hraður og eldra húsæði sprungið.
 
1993
Merking kaupir Gerber Edge merkingarvél sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.  Í henni voru prentaðar fyrstu bílamerkingarnar sem notaðar voru til að heilmerkja bíla. Þessi prentari hafði aðeins prentbreidd upp á 30sm en það kom ekki í veg fyrir svokallaða risaprentun þess tíma. Þess má til gamans geta að Gerber Edge prentarinn er enn í fullu fjöri og notaður til að sinna innanhússmerkingum og svokölluðu Slatz kerfi sem finna má um víðan völl en aðallega þó hjá ríkisstofnunum, bönkum og sveitafélögum.

1994
Sérstök beygjuvél var hönnuð og smíðuð fyrir Merkingu í þeim tilgangi að beygja álramma utan um umferðarskilti, vegvísa og bæjarnöfn. Áður var þetta allt flutt inn.

1999
Electro static prentari keyptur en hann var annar stórprentarinn sem keyptur var til Íslands. Í honum voru prentaðar bílamerkingar í stærri flötum en áður hafði tíðkast. Prentbreidd var 160 sm. Þessi prentari var hraðvirkur og með nokkuð háa upplausn. Enn má finna leyfar af bílamerkingum og skiltamerkingum unnum úr þessum prentara.

2001
Merking flytur að Viðarhöfða 4. Brautarholtið löngu sprungið og varð Viðarhöfðinn fyrir valinu. Þarna var hægt að koma öllum tækjum og tólum fyrir með góðu móti og var húsnæðið sérstaklega hannað sem skiltagerð á hagkvæman og hugvitsaman hátt.

2006
Nýir eigendur taka við rekstri Merkingar. Ný uppbygging hefst og smátt og smátt öðlast Merking sinn fyrri virðingarsess sem skiltagerð og prentþjónusta í fremstu röð.

2007
5 metra prentari keyptur, sá stærsti sinnar tegundar á Íslandi.

2010
Signart ehf sameinast Merkingu ehf í júní þetta ár. Þaðan kemur kunnátta og reynsla sem nýtist Merkingu vel á erfiðum rekstrartíma. Merking blómstrar nú sem aldrei fyrr og í dag má segja að fyrirtækið sé öflugast á meðal örfárra jafningja með stöðugan og góðan rekstur. Tækjakostur Merkingar sem fyrr er í fararbroddi. Stórprentarar eru 2 talsins, annar prentar 5 metra breidd og hinn prentar 3,2 metra breidd. Merking hefur hefur einnig yfir að ráða eina prentara sinnar tegundar sem prentar beint á mismunandi efni í allt að 2ja metra breidd, plötur, bylgjupappa og þessháttar og getur stansað út og formað í ýmsar myndir eftirá. Hér má einnig finna gæðaprentara sem prentar í 2 metra breidd og annan sem prentar í 1,6 metrum og svo nokkra prentara til viðbótar sem gæðaprenta ljósmyndir og plaköt í miklum gæðum. Í raun gætum við þjónað Danmörku á nánast öllum sviðum skiltagerðar og prentunar.

Merking ehf | Simi 562 7044 | Viđarhöfđa 4 | 110 Reykjavík | www.merking.is | merking@merking.is | Opiđ 8:30 til 17:00